Áhersla á menntun og nýsköpun

Áhersla á menntun og nýsköpun

Tryggvi Þór Herbertsson segist ágnægður með það að tveir ríkisbankanna séu nú á leið í einkaeigu. Hann telur að grunnatvinnuvegir þjóðarinnar séu í góðu horfi en það blasi þó ekki við góðir tímar þar sem það þurfi að skera mikið niður. Hann telur þó að með því að færa skattlagningu á lífeyri frá úttekt yfir á innlögn megi auka tekjur ríkissjóðs gríðarlega. Tryggvi telur mikilvægt að koma í veg fyrir svokallaðan spekileka þegar ungt fólk flykkist úr landi. Þá er hann með hugmyndir um að gefa mætti út ríkisskuldabréf sem almenningur myndi kaupa til þess að fjármagna rannsóknar- og þróunarstarfsemi líkt og þegar almenningi voru seld spariskírteini til þess að fjármagna brúun Skeiðaránna.


Rita ummæli