Katrín Olga Jóhannesdóttir er framkvæmdastjóri stjórnunarsviðs Skipta, móðurfélags Símans, ásamt því að sitja í bankaráði Seðlabankans og stjórn Icelandair. Hún ræðir um fyrirtækið Skipti og áhrif efnahagshrunsins á fyrirtækið. Katrín ræðir einnig um komu sína í Seðlabankann, atburðina í vetur og fyrirkomulagið í bankanum í dag. Þá ræðir Katrín um breytingarnar í íslensku viðskiptalífi í kjölfar hrunsins, þau verkefni sem framundan eru og tækifærið sem felst í allri þeirri athygli sem Íslendingar hafa fengið.



18. ágúst 2009 klukkan 13:33
Ég vil sjá meira af svona fólki í áhrifamiklar stöður. Þetta er kona sem tekur ábyrgð og veit hvað hún er að gera.
19. ágúst 2009 klukkan 00:31
Sammála. Við þurfum svona fólk. Faglegt og ósmitað af pólitík.
19. ágúst 2009 klukkan 00:47
Ein flottasta konan í íslensku viðskiptalífi.
19. ágúst 2009 klukkan 14:50
Karlarnir sigldu okkur í kaf. Endurreisn Íslands hvílir á herðum kvenna! Katrín Olga er ein þeirra.