Ragnheiður Ríkharðsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins telur sig hafa fylgt landsfundarályktun flokksins með því að kjósa með aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Aðspurð segist Ragnheiður eiga enga samleið með Samfylkingunni þrátt fyrir að hafa fylgt henni í þessu máli. Ragnheiður segir að þeir sem haldi um stjórnvölin séu svo smeykir við eigin ákvarðanir að þeir haldi að allt sé betra sem kemur erlendis frá. Þannig megi enginn vafi leika á því hvort bresk fjársvikadeild sem hyggst hjálpa til við rannsókn á bankahruninu hafi komið að einhverjum málum sem skekkja stöðu þeirra við þá rannsókn, en hugsanlegt er að sú deild hafi átt þátt í setningu hryðjuverkalaganna á Íslandi.



14. ágúst 2009 klukkan 11:02
Flott hjá henni að standa á sinni skoðun. Flokkapólitík er ekki það sem við þurfum núna.