Framleiða tölvuleiki á Íslandi

Framleiða tölvuleiki á Íslandi

Jónas Björgvin Antonsson er framkvæmdastjóri tölvuleikjaframleiðandans Gogogic. Fyrirtækið var stofnað árið 2006 en að stofnun þess komu m.a. þrír námsfélagar úr Háskólanum í Reykjavík. Nú starfa hjá fyrirtækinu 19 manns sem sinna ýmsum verkefnum bæði við að framleiða tölvuleiki og aðrar vörur, svo sem fyrir auglýsingastofur. Gogogic vinnur meðal annars að hönnun tölvuleikja sem spila má bæði í tölvum og iPhone.


Rita ummæli