Ingólfur Harðarson er uppfinningamaður í orðsins fyllstu merkingu. Hann hefur átt sér þann draum lengi að hanna nýja gerð af bíl sem nýtur sín betur á götum stórborga. Draumurinn er nú að verða að veruleika þar sem hann hefur fengið einkaleyfi á hönnuninni og er í viðræðum við fjárfesta um næstu skref.



27. júlí 2009 klukkan 17:48
alltaf Frábær
27. júlí 2009 klukkan 23:58
Flott
28. júlí 2009 klukkan 10:27
snilld
28. júlí 2009 klukkan 10:30
Hvernig er farið að því að skipta um miðju-dekkið ef það springur á því?
28. júlí 2009 klukkan 10:35
Ekkert mál, það verða líka loftpúðar undir honum. Einföld eðlisfræði!
28. júlí 2009 klukkan 14:34
Einn stór galli,,, hvernig í ósköpunum á þetta að keyra í snjó með drif á aðeins einu hjóli??
28. júlí 2009 klukkan 17:39
ef hitastig hækkar mikið meira á næstu áratugi þá verður líklega enginn snjór eða frost á veturna vonandi. þá væri þessi bíll mjög hentugur á íslandi á göturna
28. júlí 2009 klukkan 18:36
Þýða ekki fleiri dekk meiri orkusóun í gegnum viðnám?
28. júlí 2009 klukkan 20:00
Þetta virðist góð hugmynd. Eins og fram kom í viðtalinu þá er þetta borgarbíll. Hentar ekki í að keyra á lélegum vegum á Vestfjörðum né víðsvegar annars staðar á Íslandi. Væri fínn í t.d. París og öðrum álíka borgum. Ég er mjög hrifinn af þessari hugmynd og okkur veitir ekki af svona góðum hugmyndum.
29. júlí 2009 klukkan 00:34
skelfileg hugmynd, sorrý
ég held að hann ætti frekar að reyna að smíða og prófa að keyra raunverulegt prufueintak en leika sér minna með tölvugrafík.
svona hjólabúnaður getur ekki keyrt beint áfram, ekki frekar en innkaupakerra.
þetta gæti virkað á götum með hámarkshraða 30 km/klst
en ég myndi frekar fá mér reiðhjól.
og svo myndi ég ekki dissa þann hjólabúnað sem nú er í gangi, svo sem ballansstangir ofl, alla vega ekki fyrr en ég væri búinn að SMÍÐA búnað sem virkaði betur
29. júlí 2009 klukkan 14:51
Sæl veri þið.
Ég þakka góð og skemmtileg við brögð.
Svona til að taka af allann vafa með virkni þá hefur svokallað “proof of concespt” farið fram og það kom jákvætt út. Það var framkvæmt af bifreiðaverkfræðingum.
Ég óska ykkur góðs gegnis með allt sem þið eruð að fást við.
31. júlí 2009 klukkan 11:24
Glæsilegur. Spáið í sparnaðinn í bílastæðum í bænum þegar helmingi fleiri bílar komast fyrir, af hverju hefur engum dottið þetta í hug fyrr??
Er svo ekki hægt að henda nokkrum krökkum og voffum í skottið og bruna út úr bænum á löglegum hraða?
2. ágúst 2009 klukkan 11:21
Tekur miðjuhjólið ekki mikið pláss inn í farþegar rými?
3. ágúst 2009 klukkan 12:00
Ég er yfir mig hrifinn, gamall draumur að rætast. 1966 flutti ég til Reykjavíkur og var oft í vandræðum með að leggja í bílastæiði minnar götu. Þá datt mér í hug hvort ekki væri hægt að festa 4ra hjóla grind undir bílinn, sem hægt væri að setja niður með einum takka og leggja bílnum á hlið í stæðið og eins út úr því. Takk fyrir að þetta er að verða að veruleika, þótt þetta sé sennilega of seint fyrir mig.
31. janúar 2010 klukkan 23:27
er þetta ekki sama tækni og innkaupakerrur í bónus?
21. febrúar 2010 klukkan 12:13
uuuhm hvernig er það ef maður fer yfir hraðahandranir ? er það ekki vandamál ??