Guðjón Már er heilinn á bakvið Hugmyndaráðuneytið. Hugmyndaráðuneytið er grasrótarhreyfing sem kemur að skapandi hugsun og nýsköpun á Íslandi. Hann telur að eftir tuttugu ár munu margir telja hrunið vera það sem besta sem hafi komið fyrir Ísland. Hann segir einnig að Ísland eigi nú að grípa tækifærið og gerast einskonar frumgerðarland fyrir hinn nýja heim og koma að þróun ýmissar nýrrar tækni t.d. á sviði rafmagnsbíla.



10. ágúst 2009 klukkan 12:06
Gott viðtal og jákvætt.
10. ágúst 2009 klukkan 18:26
Guðjón hefur alltaf eitthvað gáfulegt að leggja til málanna. Mér líst sérstaklega vel á það að gera Ísland að þessu “fyrirmyndar/prótótýpu” landi sem hann talar um. Þetta er eitthvað sem má vel prófa hjá litlu en þó mjög iðnvæddu landi.
11. ágúst 2009 klukkan 08:56
Ánægjulegt þegar bartsýni, jákvæðni og þekking sameinast í einni manneskju. Gott viðtal.
11. ágúst 2009 klukkan 11:10
Gott viðtal - nauðsynlegt að sem flestir heyri. Mótefni gegn þeirri bölsýni sem tröllríður allri umræðu á Íslandi í dag.