Rússalán mun hafa heimspólitísk áhrif

Rússalán mun hafa heimspólitísk áhrif

Björn Bjarnason ræðir um Evrópusambandið, Icesave, samskipti Íslendinga við Bandaríkin og samband okkar við Breta eftir setningu hryðjuverkalaganna.  Björn vill samastarf í gjaldeyrismálum á grundvelli EES samningssins í stað þess að ganga í ESB og talar um Icesave sem dýran aðgöngumiða Íslendinga inn í ESB. Björn telur að Bandaríkjamenn hafi sýnt af sér mikið heimskubragð með því að fara með varnarliðið frá Íslandi segir að nú séu þáttaskil í samskiptum við Bandaríkin.  Björn segir að lán frá Rússum muni hafa geópólitísk áhrif og að lánið verði túlkað sem dæmi um að Rússar séu að færa út kvíarnar á Norður-Atlantshafi.

3 ummæli


  1. HGS

    Alveg satt með rannsóknarnefndina, af hverju viljum við hjálp frá þeim sem ráðlögðu örugglega bresku ríkisstjórninni að setja hryðjuverkalög á Íslendinga!

  2. Jón H Stefánsson

    Gott viðtal og áhugavert efni.

  3. elías

    Björn B. er snjall kall og margir mættu hlusta betur á það sem hann hefur að segja.


Rita ummæli