Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, talar um hvernig 900 starfsmenn bankans bjuggu sér til framtíðarsýn til þess að sigla bankanum í gegnum þann ólgusjó sem blasti við eftir bankahrunið í haust. Hún segir einnig frá því að bankinn ætli að halda áfram að sérhæfa sig í sjávarútvegs- og orkumálum alþjóðlega og að hann sé því enn í samskiptum við viðskiptavini erlendis. Þá segir Birna að enn ríki mikil samkeppni á bankamarkaði á Íslandi og að hún hafi ekki orðið fyrir neinum afstkiptum af hálfu stjórnmálamanna varðandi rekstur bankans, þrátt fyrir að hann sé nú kominn í eigu ríkisins.



11. júlí 2009 klukkan 23:26
Frábært viðtal. Öll aðalatriði komu fram í spurningum og svörum. Hlakka til að heyra og sjá fleiri svona markviss viðtöl.