Aðalheiður Héðinsdóttir hóf rekstur Kaffitárs fyrir 20 árum þegar hún seldi fjölskyldubílinn og festi í stað kaup á kaffibrennsluofni. Í dag starfa hjá fyrirtækinu yfir 100 manns og ætti saga Kaffitárs að vera öðrum til fyrirmyndar sem hyggjast stofna fyrirtæki. Aðalheiður segir að lykillinn að velgengninni sé meðal annars sá að víkja aldrei frá þeim markmiðum sem sett voru í upphafi auk þess sem það geti borgað sig að vaxa ekki of hratt. Þá sé mikilvægast af öllu að eiga fyrir skuldunum.



13. ágúst 2009 klukkan 10:51
Við þurfum meira af svona viðskiptafólki á Nýja-Íslandi!
13. ágúst 2009 klukkan 13:37
Ætli leikmenn finni muninn á íslensku kaffi og því innflutta? Það er alveg spurning. En það skapar náttúrulega atvinnu að gera þetta hér heima, og það veitir ekki af því.
13. ágúst 2009 klukkan 15:39
Það þarf einmit meira af upplýsingum um frumkvöðla og þeirra sögur. Einstaklega skemmtilegt og fræðandi.